13.5.2010 | 19:59
Að stefna sakleysingjum
Það er ekki lítið sem gengur á varðandi blessaðan Jón Ásgeir. Hann rændi t.d. 25% af mínum lífeyrissjóði, hefur væntanlega bara gengið gott eitt til.
Svo verður þessi höfðingi bara fyrir allskyns pólitískum ofsóknum og hefur ekki lengur efni á að svara fyrir sig.
Hvernig væri að efna til samskota meðal þjóðarinnar til að styrkja þennan mikla höfðingja í að verja sitt óflekkaða mannorð?
Baugsmiðlar gætu t.d. staðið fyrir svona samskotakveldi, þar sem hægt væri að fá lán og framvirkar skulbindingar hjá mörlandanum, til að styrkja höfðingjann.
Mikið er nú gott að t.d. Arion banki skuli ekki missa trúna á Bónusfjölskyldunni, enginn er hæfari til að reka fyrirtæki en þeir feðgar.
Legg til að stofnaður verði reikningur hjá Arion banka, þar sem hægt verði að taka yfirdráttarlán til styrktar þolendum pólitískra ofsókna. Bónusgreiðslur gangi svo til Tortóla, þar sem sjóðirnir þeirra eru.
Stefnan í höndum lögmanna Jóns Ásgeirs | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Valgeir Hallvarðsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.