Fréttastofur Bónusveldisins og Samfylkingarinnar ganga af göflunum.

Mikið er ánægjulegt að njóta þessa "hlutleysis" í fréttamennsku, sem svo oft er dásamað í okkar Bananalýðveldi.

Lára Ómarsdóttir Ragnarssonar lýsti vel komandi hamförum, skyldum við ekki sætta okkur við hlekki Icesave.  Vel er þar í kot vísað.  Útvarpsstjóri sjálfur stóð á öndinni, gat með herkjum vísað framhaldi "fréttarinnar" til Láru.

Nú fær þjóðin einfaldlega að velja sjálf, hvort hún vill taka á sig skuldir glæpamanna, sem hlægja að okkur á Tortólu, í Barselónu og á fleiri stöðum, þar sem þeir njóta þýfisins.

Er ekki orðið nokkuð ljóst að við viljum draga glæpamennina fyrir dómstóla, í stað þess að t.d. leyfa þeim að ráða stórum hluta fjölmiðla hér á landi ?

Eigum við að setja okkur og börnin okkar í skuldaklafa glæpamanna, bara til að þóknast Brussel og Steingrími J. / Jóhönnu ?

 


mbl.is Undrast mjög ákvörðun forseta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Aðalsteinn Jónsson

Frétt dagsins er það hvernig fjölmiðlar höguðu sér og opinberuðu sjálfan sig

Jón Aðalsteinn Jónsson, 20.2.2011 kl. 20:39

2 Smámynd: Júlíus Björnsson

Á Indlandi hefur skuldaþræla kerfið aldrei liðið undirlok. Þetta er í mínum ekkert óðgeðslegar stjórnsýslu rekstrarform en mannsal. Icesave samningur að frumkvæði skuldaþræladýrkanda á Íslandi tilraun til að viðhalda því. Hinsvegar hafa þau engar tyggingar fyrir áframhaldi samstarfi UK og Hollands á þessum nótum. Enginn mun nokkur tíma aftur næstu öldina erlendis treyst Íslenskum útbúum óháð hvort við greiðum reikninga fyrir vildarvini í þessum ríkjum. 

Júlíus Björnsson, 20.2.2011 kl. 23:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Valgeir Hallvarðsson

Höfundur

Valgeir Hallvarðsson
Valgeir Hallvarðsson
Höfundur er Íslendingur.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband